24.03.1922
Neðri deild: 31. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í C-deild Alþingistíðinda. (1448)

65. mál, sameining Árnessýslu og Rangárvallasýslu

Forseti (B. Sv.):

Út af orðum háttv. frsm. (St. St.) skal jeg geta þess, að hin rökstudda dagskrá tekur einungis til þess frv., sem hjer liggur fyrir, en tekur alls ekki til þess frv., sem hv. þm. Str. (M. P.) flytur; þótt hún verði samþ., þá kemur það frv. fram hjer eftir sem áður.