01.03.1922
Neðri deild: 11. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (1540)

14. mál, útflutningsgjald af síld o.fl.

Fjármálaráðherra (M. G.):

Það var ekki meining mín að innleiða hjer umr. um endurgreiðsluákvæði síldartollslaganna, þótt hv. þm. Ak. (M. K.) virðist hafa skilið mig svo, enda liggur hjer ekki fyrir nein till. í þá átt, til þess að taka ákvörðun um. En jeg get vel beðið frekari reynslu um þetta ákvæði, því jeg veit, að hún muni sanna mín orð um að það sje óhæft. Og að mínu áliti er það gersamlega fráleitt að gera síldarútveg hærra undir höfði en öðrum atvinnuvegum.