22.03.1922
Neðri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (1580)

7. mál, einkaleyfi

Magnús Kristjánsson:

Jeg verð að vekja athygli hv. þdm. á því, að mjer virðist ástæðulaust að vísa þessu máli til sjútvn., sem er um of störfum hlaðin. Tel jeg litla von um afgreiðslu þess, ef því verður vísað þangað, og geri jeg það því að till. minni, að málinu verði vísað til allshn.