02.03.1922
Neðri deild: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (1670)
42. mál, landhelgisgæsla
Forseti (B. Sv.):
Jeg treysti mjer ekki til þess að taka brtt. hv. þm. Ak. (M. K.) til greina, af þeirri ástæðu, að þál. þessi hefir útgjöld í för með sjer, en þingsköp mæla svo fyrir, að um slíkar till. skuli ávalt fram fara tvær umræður. En ef mjög þarf að hraða þessu máli, þá sje jeg til þess tvær leiðir færar, annaðhvort að halda aukafund, eða hafa tvær umr. sama dag.