06.03.1922
Efri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (1709)

42. mál, landhelgisgæsla

Sigurður Jónsson:

Jeg vil geta þess, að jeg fylgdist svo vel með umr. um þetta mál í hv. Nd., að fyrir mitt leyti tel jeg ekkert því til fyrirstöðu, að málið verði tekið fyrir í dag. Jeg býst einnig við, að flestum hv. deildarmönnum sje málið jafnljóst sem mjer af þeim umr., og mun jeg því greiða atkv. með þeim afbrigðum frá þingsköpum, að skotið verði á fundi um málið þegar í dag.