07.03.1922
Efri deild: 15. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (1719)
42. mál, landhelgisgæsla
Karl Einarsson:
Aðeins stutt athugasemd.
Jeg sagði ekki, að jeg teldi landhelgisgæslunni fullborgið með því að hafa þrjú skip. Það, sem jeg sagði, var, að jeg teldi henni sæmilega fyrir komið með því að hafa þrjú skip, tvö „stationeruð“ og eitt laust, sem kalla mætti hvert sem vera vildi.
En þó að bátar væru hafðir til eftirlits inni á fjörðum, eins og t. d. Breiðafirði, þá ætti það ekki að vera svo tilfinnanlegur kostnaður, að það væri eigi vel kleift, og ef hv. þm. Snæf. (H. St.) reiknar, að það þurfi 6–7 skip með þeim, þá erum við á sama máli. (H. St.: Nægði slíkt eftirlit fyrir Vestmannaeyjar?). Nei, en slíkt ætti að nægja úti á miðunum innfjarða, til leiðbeiningar. En jeg ætlast til, að lausa skipið gæti haft fullkomið eftirlit á Faxaflóa. Og eins og nú er háttað samgöngum hjá okkur, er jeg viss um, að þremur skipum ætti að vera hægt að annast landhelgisgæsluna, svo að hún væri í nokkru lagi.
Jeg vil því halda því fast fram, að botnvörpuútgerð, sem rekin er með það fyrir augum að veiða í landhelgi, væri með öllu dauðadæmd, ef landhelgisgæslunni væri þannig fyrir komið.