21.04.1922
Sameinað þing: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (1759)

61. mál, breyting á hæstaréttarlögum

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg tel rjett, að stjórnin reyni að koma þessu fram, en í samráði við þá menn, sem hjer eiga einkum hlut að máli, hæstarjettardómarana, þó ekki á móti almennum vilja. Þó að miðdómur yrði settur, tel jeg allmikið sparað, einkum fyrir þá, sem leita þurfa rjettar síns, og betri tryggingu fyrir góðu rjettarfari í landinu.