06.04.1922
Neðri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (1843)

75. mál, rannsókn á máli Árna Theódórs Péturssonar

Jón Þorláksson:

Mjer finst það nokkuð undarlegt að vísa þessu máli til stjórnarinnar til rannsóknar, þegar maðurinn ber sig einmitt upp undan aðgerðum stjórnarinnar. Þetta er alveg sama sem þingið segðist ekki vilja sinna málaleitun hans. Mætti verja þetta með því einu, að stjórnarskifti hafa orðið, en það rjettlætir í engu þessa meðferð málsins alment.