04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (1960)

77. mál, skaðabótamál gegn Íslandsbanka

Magnús Kristjánsson:

Þessum röksemdum hv. þm. Dala. (B. J.) verð jeg að mótmæla. Núverandi stjórn ber ekki ábyrgð á því, sem gerst hefir í þessu máli áður en hún tók við. Og nú hefir aðeins einn ráðherranna lýst afstöðu sinni til málsins. Þess vegna held jeg fast við till. mína um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar.