16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Sætaskipan

Forseti (B. Sv.):

Í sambandi við ummæli hæstv. forsrh. (J.M.) vil jeg þó geta þess, að höfundur þingskapanna, hæstv. forseti Ed. (G.B.). hefir leyft þessi afbrigði frá þingsköpum án þess að leita samþykkis stjórnar og þingdeildar, og það síðast á þessu þingi, og meira að segja á 2. fundi deildarinnar. En mjer finst sjálfsagt að leita afbrigða á formlegan hátt. Jeg þakka hæstv. forsrh. (J. M.) fyrir að hafa leyft afbrigði og leyfi mjer að bera afbrigðin undir atkv.