16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (24)

Kosning fastanefnda

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg sje ekki ástæðu til að skipa nefndina 7 mönnum að þessu sinni. Er það bæði, að hún hefir ekki mjög mikil störf með höndum, og ennfremur óheppilegt að festa menn í nefndum umfram þarfir, ekki síst þar sem gera má ráð fyrir, að skipaðar verði aukanefndir, t. d. fossanefnd og viðskiftanefnd.