01.03.1922
Efri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (309)
10. mál, verslunarskýrslur
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Frumvarp þetta er samið af hagstofunni og snertir mest hennar verkahring. Er það samið sjerstaklega með það fyrir augum, að sá fróðleikur, sem fæst með verslunarskýrslum, komi fyrir almenningssjónir fyr en ella. Og ef það takmark næst, getur eigi annað talist en það sje til bóta. Því að hins vegar virðist það eigi þurfa að vera svo mikil óþægindi fyrir lögreglustjóra og þá, sem skýrslurnar eiga að gefa, að það skifti miklu máli.
Þarf jeg svo eigi að fara frekar út í þetta, en leyfi mjer að vísa til ástæðna stjórnarinnar fyrir frumvarpinu. En hvað snertir brtt., sem frekar er orðabreyting en efnisbreyting, vísa jeg til nefndarálitsins.