06.04.1922
Efri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

50. mál, jörðin Bakki með Tröllakoti lögð undir Húsavíkurhrepp

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Jeg hefi ekkert um frv. þetta að segja að svo stöddu.

Læt nægja að vísa til nefndarálitsins á þskj. 198 og til þeirra skjala, sem lögð hafa verið fram um málið. Vil svo leggja til fyrir nefndarinnar hönd, að frv. verði samþykt með þeirri breytingu, sem nefndin leggur til.