04.04.1922
Efri deild: 36. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (392)

59. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði

Björn Kristjánsson:

Jeg þakka háttv. allsherjarnefnd fyrir sín góðu afskifti af þessu máli. Frv. hefir gengið gegnum hv. Nd. viðstöðulaust, og vona jeg, að sú verði og raunin á hjer. Jeg tel rjett og sjálfsagt að veita bænum þessa rjettarbót, þótt mótmælum hafi verið hreyft gegn því, vegna þess að endurskoðun eigi á næstunni að fara fram á sveitarstjórnarlöggjöfinni.