06.03.1922
Efri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (399)

23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði

Einar Árnason:

Jeg vil geta þess út af brtt. háttv. fjárhagsnefndar, að jeg hefi átt tal við eiganda kirkjunnar, og hefir hann ekkert við brtt. að athuga. Þó að skuldin sje allmikil, um 36. þús. kr., leggur hann enga áherslu á hana, ef viðhald kirkjunnar er trygt.