16.03.1922
Neðri deild: 24. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (408)
23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði
Pjetur Ottesen:
Jeg vildi aðeins skjóta því til hv. fjhn., hvort hún vilji ekki taka það til athugunar í sambandi við þetta frv., að það er ekki nema eðlileg afleiðing af því ef gengið er inn á þessa braut, að þá munu koma fram óskir og kröfur um, að svo verði víðar að farið, að prestsmötugjaldið verði lagt til viðhalds kirkjunum. Því skórinn kreppir víða að í því efni.
Því er haldið fram, að hjer standi alveg sjerstaklega á, og getur það verið að sumu leyti, að kirkja þessi sje stórt og veglegt hús og viðhaldsfrek. En því er nú svo varið með kirkjur yfirleitt, eða timburkirkjur að minsta kosti, að þær eru viðhaldsfrekar, en víða litlu að miðla í því efni. En jeg vildi aðeins benda á, að hjer er verið að mynda fordæmi, ef farið er inn á þessa braut.