22.03.1922
Neðri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði

Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):

Jeg skal svara háttv. þm. Borgf. (P. O.) því, að nefndin er einmitt að vinna að þessu máli og mun koma fram með till. sínar þar að lútandi, þegar hún hefir rannsakað það til fulls. Vil jeg og geta þess, að jeg býst fastlega við, að hún komist að sömu niðurstöðu og háttv. þm. Borgf. (P. O.) í þessu efni.