24.03.1922
Neðri deild: 31. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (420)
23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði
Hákon Kristófersson:
Jeg skal ekki lengja umræðurnar mikið; jeg vil aðeins taka fram hið sama, sem jeg sagði við 2. umr. þessa máls, að jeg tel sanngjarnt, að þetta frv. nái fram að ganga. Jeg vænti þess aðeins, að nefndin finni sanngirnishvöt hjá sjer til að athuga svipaðar misfellur, sem eiga sjer stað annarsstaðar, því að víðar er pottur brotinn en hjer og að mörgu leyti líkt ástatt með aðrar kirkjur, þótt stærð og prýði kirknanna sje ekki sambærileg. Þegar jeg vakti máls á þessu, þá tóku bæði frsm. og formaður nefndarinnar þessu svo drengilega, að jeg bjóst við, að þeir mundu koma fram með breytingu. En þeir hafa nú ekki enn gert það, en jeg treysti þeirra góða vilja og að það komi á þessu þingi, þótt síðar verði.