11.03.1922
Efri deild: 18. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

Kosningar

Forseti (G. B.):

Jeg skal geta þess, að þar sem gæslustjóri Söfnunarsjóðsins, Klemens Jónsson, hefir nú tekið við ráðherrastörfum, verður að kjósa mann að nýju fyrir það, sem eftir er kjörtímabilsins. Og þar sem hann var kosinn af þessari deild til að gegna þessu starfi, þá fellur undir hennar verksvið að kjósa mann í hans stað.

Kosningu hlaut

Guðjón Guðlaugsson alþm., með 7 atkv.

Ólafur Briem fyrv. alþm. hlaut 2. atkv. og Björn Kristjánsson alþm. hlaut 1 atkv., en 3 seðlar voru auðir.