17.03.1922
Neðri deild: 25. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

60. mál, einkaréttur til að selja allt silfurberg

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Jeg vil aðeins leyfa mjer að gera örstutta aths. við ræðu hæstv. atvrh. (Kl. J.). Jeg geri sem sje ráð fyrir miklu hærri sölu heldur en áætlun sú, er hann kom með, gerir ráð fyrir. Af því leiðir, að ágóðinn verður miklu meiri.