25.03.1922
Sameinað þing: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

Mannaskipti í nefndum

forseti (M. K.):

Jeg tel rjett, að í kjörbrjefanefnd komi annar maður í minn stað, og eftir þingvenju ætti flokkur sá, er jeg telst til, að ráða því, hver hann verður, án þess að kosning fari fram. Ef enginn mælir á móti því, verður sú aðferð viðhöfð.