08.04.1922
Efri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

15. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg get tekið undir með hv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.), að það gleður mig, að ekki koma fram andmæli gegn frv., en annars hafa nú engir látið uppi álit sitt um það enn, nema háttv. meðnefndarmaður minn, 2. S.-M. Mig furðaði annars stórlega á upplýsingum hv. meðnefndarmanns míns, að skömmu fyrir fundarbyrjun talaði jeg við hann og vissi hann þá ekkert um þetta, eða vildi þá að minsta kosti ekki segja mjer. Undrar mig það eigi alllítið, en fróðleikur hans hefði, ef til vill, eitthvað gengið saman við umræður í nefnd.