27.02.1922
Neðri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (624)

19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Forsætisráðherra (J. M.):

Háttv. þm. Borgf. (P. O.) lætur sjer þó varla detta í hug, að jeg svari þessari fyrirspurn nú. Ef jeg ætlaði að gefa skýrslu um slík efni, yrði jeg vitanlega að ráðgast fyrst við bankaráðsmennina. Auk þess hefir stjórnin rjett til að fá tilkynningu um slíkar fyrirspurnir nokkrum dögum áður en svarsins er vænst.