18.04.1922
Efri deild: 45. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í B-deild Alþingistíðinda. (659)

19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Frsm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Það var að vísu svo, að brtt. frá mjer fjell hjer við síðustu umr. með jöfnum atkv. Fyrir það vil jeg þó ekki leggja til, að lögunum sje hafnað, en svo verð jeg að líta á, að í þeim umr., sem hjer hafa orðið, felist alvarleg bending til hæstv. stjórnar til að nota alls ekki rjettinn til að auka seðlaútgáfuna.