31.03.1922
Neðri deild: 37. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (804)

71. mál, kennsla heyrnar og málleysingja

Magnús Guðmundsson:

Jeg vildi aðeins leyfa mjer að beina þeirri spurningu til háttv. nefndar, hvort hún hafi athugað, hvort ekki muni þurfa að auka kenslu við málleysingjaskólann, ef þetta frv. verður samþykt, eða húsakynni þar muni þá ekki verða altof lítil.