15.03.1922
Efri deild: 20. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
57. mál, sveitarstjórnarlög
Björn Kristjánsson:
Það er mikið kapp, sem lagt er á að drepa þetta frv.; því að strax við fyrstu umræðu kom fram dagskrá um að vísa því frá, og svo nú við aðra umræðu kemur fram önnur sama efnis. Jeg er alveg hissa á þessari mótstöðu, sem frv. fær, þegar þingmenn yfirleitt viðurkenna, að þeir sjeu ekki móti innihaldi þess. Jeg gat að vísu búist við dálítilli mótstöðu á móti frv., því að einn háttv. þm. sagði mjer, að það ætti ekki að fara lifandi út úr deildinni.
Háttv. 1. landsk. (S. F.) sagði hið sama, sem áður hefir komið fram hjer í þessari háttv. deild, að það væri ekki ómaksins vert fyrir þingið að vera að breyta þessum lögum nú, af því að gagnger endurskoðun á þeim lægi fyrir dyrum. En mjer finst eigi annað en það sje alveg vansalaust fyrir hið háa Alþingi, þó að það lagi strax þau ákvæði laganna, sem þegar er fyrirsjáanlegt, að þarf að laga, því að ennþá getur liðið alllangur tími þangað til endurskoðun laganna er komin í kring.
Þá talaði háttv. þm. um, að þetta væri ekki nema tímatöf, að vera að fást við þetta nú, því að frv. mundi verða breytt í háttv. Nd. En slíkt er ekkert nýtt, og má altaf gera ráð fyrir því, að frv. taki breytingum þegar þau fara á milli deilda. Hvað snertir það, sem háttv. þm. var að tala um, að þegar væri byrjað á undirbúningi undir endurskoðun sveitarstjórnarlaganna, þá er það víst aldrei nema satt. En eins og jeg tók fram áðan, þá geta jafnvel liðið mörg ár þangað til slík endurskoðun er komin í kring.
Jeg skil ekki, hversvegna lagt er svona mikið kapp á að drepa þetta frv., þar sem þær breytingar, sem það hefir í sjer fólgnar, koma ekki í bága við skoðun neins háttv. þm. Það hlýtur því eitthvað annað að liggja á bak við, og vil jeg óska, að það komi fram, svo hægt væri að átta sig á því. Annars vænti jeg þess, að hv. deild gefi þessu frv. atkvæði til 3. umr.