12.04.1922
Neðri deild: 47. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (896)
57. mál, sveitarstjórnarlög
Jón Sigurðsson:
Jeg vil ekki tefja tímann mikið, en jeg verð að lýsa yfir því, að jeg get ekki fylgt frv. þessu, eins og það er nú orðið. Það hefir ekki verið hægt að fá háttv. deild til að taka inn í frv. nauðsynlegar rjettarbætur. En þar sem það liggur nú fyrir stjórninni að rannsaka nýja gjaldstofna handa sveitar- og sýslusjóðum, en þetta mál komið í öngþveiti, er því einsætt, að best er að þetta sje rannsakað í heild sinni. Vil jeg því gera það að tillögu minni, að þessu máli verði vísað til stjórnarinnar og henni falið að koma fram með tillögur í því, hvort sem, það verða þá sjerstakar tillögur eða sem 36. og 37. gr. sveitarstjórnarlaganna. Þetta er eðlilegust lausn á málinu, og með því móti mætti vænta, að fram kæmu tillögur, er menn gætu orðið ásáttir um.