25.04.1922
Efri deild: 50. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

68. mál, fræðsla barna

Frsm. (Sigurður Jónsson):

Þar sem fundur þessi hefir verið boðaður fyr á degi en venjulega hefir mentamálanefndin ekki haft tíma til að athugá brtt. þá, sem fram er komin við málið. Væri henni því kærast, að málið yrði látið bíða þangað til á væntanlegum fundi síðar í dag, til þess að hún geti athugað brtt. og talað við mentamálanefnd Nd., því að töluvert kapp virðist vera komið í þetta mál.