05.04.1922
Neðri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 811 í B-deild Alþingistíðinda. (973)
58. mál, atvinna við siglingar
Frsm. (Ólafur Proppé):
Mjer kemur það nokkuð á óvart, að hv. þm. Barð. (H. K.), slíkur sparnaðarmaður sem hann vill vera, skuli hafa sjest yfir sparnaðinn við þessa brtt.; er og líka um nokkurn misskilning að ræða hjá honum. Í frv. felst það nýmæli, að á öllum smáskipum skuli vera stýrimenn, en þeir þurfa að taka próf það, sem um getur í 5. gr. frv. Munu því vera í Vestmannaeyjum um 70 manns, þegar lögin öðlast gildi, sem undir próf þetta þurfa að ganga. Einnig eru margir á Austfjörðum. Ef maður áætlaði nú, að þetta væru í alt 150 manns og ferðakostnaður hvers væri 200 kr., þá er hjer að ræða um 30000 kr. sparnað fyrir menn þessa. En hafi prófnefndir þetta starf með höndum, er í mesta lagi um ferðakostnað eins manns að ræða. Er því sparnaðurinn auðsær, enda eru sjávarútvegsnefndir beggja deilda á einu máli um þetta.