04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

80. mál, stofnun landsbanka

Guðmundur Ólafsson:

Jeg get ekki verið sammála háttv. síðasta ræðumanni (JóhJóh). Laun bankastjóra get jeg alls ekki miðað við laun embættismanna alment nje sjeð, að þau eigi að vera í samræmi við þau. Svo hefir ekki heldur verið, og því til sönnunar vil jeg benda á þau eftirlaun, sem fráfarnir bankastjórar hafa nú, samanborið við eftirlaun annara embættismanna.