05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)

80. mál, stofnun landsbanka

Forsætisráðherra (SE):

Það er alveg rjett hjá hv. 4. landsk. þm. (JM), að dýrtíðaruppbótin var áður ákveðin af bankaráðinu jafnóðum, svo að launaviðbótin var nokkuð óviss frá ári til árs. En jeg miðaði við dýrtíðaruppbótina eins og hún var ákveðin áður en breytingin varð í bankanum á hæstu laununum.