05.04.1923
Neðri deild: 34. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)
59. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar
Sveinn Ólafsson:
Jeg skal viðurkenna, að mjer eru farnar að leiðast umræður í þessu máli og tel andstöðuna gegn brtt. minni harla ljettvæga. Háttv. þm. V.-Sk. (LH) hefir bent á það, sem er aðalatriðið, að tryggingin verður ómótmælanlega í flestum tilfellum miklu meiri með vottorði tveggja skilríkra manna, sem viðstaddir eru, en með vottorði fjarstadds hreppstjóra. Þá má og minna á það, að venja hefir verið að senda kosningarkassann strax áleiðis til sýslumanns að kjörfundi loknum, og því ekki hægt að koma atkvæðum að síðar. Annars er tilgangslaust að þrátta lengur um þetta. Aðalatriðið er það, að ekki verði fölsuð vottorð um forföll og mönnum sje ekki gert of erfitt fyrir að greiða atkvæði. En eins og jeg áður nefndi, hefir hv. þm. V.-Sk. tekið ljóslega fram rökin fyrir brtt. minni og sýnt, að fyllri trygging fæst að öllum jafnaði fyrir falslausri skýrslu um forföllin með vottorði tveggja sjónarvotta en vottorði, sem hreppstjóri kann að gefa eftir skilaboðum eða orðsendingu.