13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)

139. mál, fjáraukalög 1923

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Jeg get ekki tekið til mín ákúrurnar frá háttv. 1. þm. Eyf. (StSt), að jeg hefði ekki svarað neinu fyrirspurn hans. Jeg gerði það einmitt, og það mjög ljóslega, að vísu ekki út af fyrirspurn hv. 1. þm. Eyf., en í svari mínu til hv. frsm. fjvn. (MP). Að því er annars snertir þessi mannvirki á Siglufirði, þá heyrir það undir kirkjumálaráðherrann, og skal jeg ekki fara neitt út í það.