09.03.1923
Neðri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Magnús Kristjánsson:
Það er grunsamt, hve fljótur háttv. 1. þm. Reykv. ( JakM) var að tileinka sjer þetta, sem jeg sagði áðan. Jeg fór þó aldrei lengra en að segja, að mjer þætti sorglegt, ef háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) væri kominn á það stig, sem jeg gat um. Og það virðist svo, sem jeg hafi ekkert látið þar ofmælt, því háttv. þm. staðfesti þegar í stað, að svo sorglega væri ástatt um hann með því að taka orð mín til sín. (JakM: Jeg staðfesti þau ekki. Jeg mótmælti þeim).
Það, að háttv. þm. sagði, að jeg hefði í dag komið með alt annan samanburð en í gær, sannar aðeins þá spá mína, að hann muni halda áfram sama blekkingaleiknum.