23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1620 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)
99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Jón Baldvinsson:
Mjer þykir háttv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ) hafa tekið allóstint upp hógværar aðfinslur við þetta mál, og jeg get tekið undir með till. háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) um að skjóta þessu máli á frest. Jeg tel það algerlega ófært, að teknar verði þegar hálfar tekjur þessa árs, eins og til er ætlast samkvæmt þessu frv., þar sem bæjarstjórnin hjer mun nú nýlega hafa ráðstafað þeim.
Það er ekki rjett hjá hv. 1. þm. Reykv. (JakM), þó þingið sje búið að veita einhverjum bæjar- eða sveitarfjelögum rjettindi með heimildarlögum til að búa sjer til nýja tekjustofna, að þá megi svifta þau þessum rjetti aftur. Því neitar að vísu enginn, að Alþingi hefir vald til þessa, en jeg álít ekki rjett, að þingið neyti þess valds. Þá sagði háttv. 1. þm. Reykv., að áhugi bæjarstjórnar hefði verið lítill á þessu máli, þegar skemtanaskattslögin voru fyrst samþykt. Það getur vel verið rjett; en svo var og þá á Alþingi, og hefir þetta oft komið fyrir. Þá sagði sami háttv. þm., að bæjarstjórnin hefði ekki farið rjetta boðleið til þingsins með þessa áskorun, en jeg veit nú samt, að hún lá hjer til aflestrar á skrifstofu Alþingis. Það má vel vera, að þessi háttv. þm. hafi orðið var við gremju hjá borgarstjóra og öðrum, vegna þess, hve seint gengur að fá afgreidd frá Alþingi lögin um bæjargjöldin o. fl. Jeg og fleiri erum einnig sárir út af þessu. Hann sagði enn fremur, að þetta hrykki skamt til að koma upp þessum hælum; þetta eru þó um 30 þús. kr. á ári, og það ætti því ekki að ganga svo afarseint. Þá var háttv. þm. á móti barnahælum, og það er gild ástæða fyrir sjálfan hann, en ekki fyrir aðra. Það er talsvert erfitt að koma börnum hjeðan úr Reykjavík í sveit, og þá álít jeg að þessi hæli gætu komið að gagni. Þingmaðurinn (JakM) taldi þetta geta orðið að eyðslufje bæjarstjórnarinnar, eins og fór um landhelgissjóðinn hjá ríkisstjórninni. En þetta er alls engin ástæða.
Háttv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ) fór geystur mjög og rasandi vegna þeirra ummæla, er fram hafa komið gegn þessu frv., en það, sem hneykslaði mig mest af öllu, voru þau ummæli hans, að hann, og þeir flm., skyldu vera með brtt. þm. Borgf. (PO) ef hann aftur lofaði frv. fylgi sínu. Þá sagði hann, að bæjarstjórn Reykjavíkur notaði þau vopn, er hún hygði best mundu bíta. Jeg skil alls eigi þessi ummæli háttv. þm., því bæjarstjórnin hefir ekkert annað sagt en það, sem satt er og rjett, að búið er að ráðstafa fje því, sem inn kemur fyrir skemtanaskatt. En sú aðferð flutningsmanna þessa máls er alger lega óviðeigandi, að undanþiggja hin stærri kauptún frá því að leggja fje til leikhússins, sem landið alt á að kosta.
Jeg er því á móti þessum brtt., en um frv. sjálft get jeg ekki fullyrt neitt, hvernig jeg muni snúast við því, er til atkvgr. kemur. En eins og nú stendur vildi jeg helst fresta þessu máli.