12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (1461)
151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum
Forsætisráðherra (SE):
Jeg á erfitt með að svara því, hversu marga sparisjóði væntanlegur eftirlitsmaður myndi skoða á ári.
Það mundi fara mjög eftir atvikum, en varla mundi það valda neinum vandkvæðum. Fyrst yrði auðvitað farið þangað, sem grunur ljeki á, að eitthvað væri athugavert. Það er að vísu satt, að þegar sparisjóðir eru komnir á víst stig, þá getur stjórnin látið rannsaka þá. En kjarni málsins er, að þeir sjeu rannsakaðir áður en fer að hallast á fyrir þeim, og mætti með því oft koma í veg fyrir, að svo færi.