04.04.1923
Efri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)

100. mál, réttindi og skyldur hjóna

Forsætisráðherra (SE):

Jeg hefi leyft mjer að biðja um orðið á undan háttv. frsm. (JM), vegna þess, að jeg verð nú að taka þátt í umræðum í háttv. Nd., en vildi ekki láta hjá líða að votta nefndinni þakkir mínar fyrir fljóta og góða meðferð á frv. Jeg get fallist á allar brtt. nefndarinnar, og jeg veit, að höfundur frv. hefir ekkert sjerstakt við þær að athuga. Jeg vona því, að frv. nái fram að ganga.