24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

13. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Magnús Guðmundsson):

Jeg skal aðeins skýra frá því, að fjárhagsnefnd hefir í gær athugað frv. þetta og kom sjer saman um að ráða hv. deild til þess að samþykkja það óbreytt. Frv. hefir aðeins tekið einni breytingu í hv. Ed., þannig, að leyft er einnig að draga frá við skattaframtal tekju- og eignarskattinn, og þykir nefndinni ekki ástæða til þess, úr því sem komið er, að gera það að ágreiningsatriði.