01.05.1923
Neðri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)
11. mál, fátækralög
Frsm. meiri hl. (Björn Hallsson):
Það eru aðeins fáein orð í garð háttv. þm. Str. (MP), og skal jeg reyna að vera hógvær og reita hann ekki til reiði. Hann ljet á sjer skilja, að jeg hefði talað á móti betri vitund, hefði þóst misskilja það, er jeg hafi hlotið að skilja, þegar hann talaði um óþinghæf rök. Jeg sagði um geðveikrahælið, að nefndin gæti ekki samþykt að taka með þá sjúklinga, sem komið er fyrir utan heimila sinna, því að það væri misrjetti gagnvart þeim, sem yrðu að vera heima hjá sjer. Háttv. þm. vildi ekki kannast við, að stefna sín væri að gera landið að allsherjarframfærslusveit. Jeg vil benda honum á, að einn liðurinn í þeirri viðleitni er að færa gamalmennahælið nú þegar undir þessi ákvæði. Þó að það yrði ekki þungbært nú, gæti það orðið stórt atriði með tímanum. Jeg játa það hins vegar, að það er mannúðlegt og að ýmsu leyti gott að gera sem mest fyrir sjúka menn, en hagur ríkissjóðs þolir ekki öll hugsanleg útgjöld, og verður líka að taka tillit til þess.