24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Magnús Guðmundsson):
Mjer fanst jeg ekki geta fengið það ákveðið út úr ræðu hæstv. fjármálaráðherra (MagnJ). hvort hann óskar þess, að frv. þetta verði samþykt. (Fjrh. MagnJ: Jú, jeg tók það fram). Jæja, jeg geng þá út frá, að hæstv. ráðherra óski, að frv. verði samþykt óbreytt. En þá skil jeg ekki vel aðfinslur hans, því að frv. er lítið erfiðara í framkvæmdinni þ. á., þótt tekju- og eignarskattinn megi draga frá, því allir formenn yfirskattanefnda hafa skrá yfir þennan skatt.