20.02.1923
Efri deild: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1872 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)

9. mál, vatnalög

Jón Magnússon:

Jeg get ekki haft á móti allsherjarnefnd, en jeg vona, að nefndin fái að bæta við sig mönnum vegna þessa máls. Ef sú von mín rætist — og jeg veit, að slíkt hefir oft tíðkast áður —, þá held jeg, að rjettast væri að reyna að komast hjá sjerstakri nefnd, því svo er til ætlast, að fastanefndirnar eigi að vera fullnægjandi að mestu leyti.