02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

124. mál, friðun á laxi

Þórarinn Jónsson:

Jeg tel ástæðulaust að lengja þessar umræður. Jeg hefi áður látið þá skoðun í ljós, að óhæfilegt væri að samþykkja þetta frv. Jeg get bætt einni ástæðu við, sem áður hefir ekki verið tekin fram, að hjer er einstökum mönnum heimilaður atvinnurekstur á helgidögum þjóðkirkjunnar, sem öðrum er bannaður. En það mun ekki þykja nema smáræði með öðrum fjarstæðum, sem í frv. felast.