02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)

124. mál, friðun á laxi

Þórarinn Jónsson:

Jeg vil aðeins minna háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) á, að lögin mæla svo fyrir, að net skuli tekin upp kl. 9 á laugardagskvöldum og ekki lögð aftur fyr en kl. 9 að morgni á mánudag. Með þessu er, jafnframt því sem þetta er friðunarákvæði, sjálfsagt helgidagshvíldin ákveðin.