12.03.1923
Efri deild: 15. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (1886)
63. mál, ófriðun sels í Ölfusá
Flm. (Jónas Jónsson):
Jeg ætla aðeins að segja fáein orð viðvíkjandi þessu frv. Það er komið til af því, að bændur við Ölfusá og Sog hafa byrjað á laxaklaki í ám þessum og lagt á sig talsverðan kostnað í þeim tilgangi, í von um, að laxveiði aukist. En frá fornum tíma hefir verið dálítil selveiði á tveim jörðum í Ölfusinu, og máske eitthvað lítils háttar á þriðja bænum.
Það er ósamrýmanlegt að selir og laxar sjeu friðaðir í sömu vötnum, ef menn vilja hagnýta sjer laxveiðina sem best. Þess vegna er frv. fram komið.
Landið á aðra jörðina, sem um ræðir, og þar eð það getur varla verið þekt fyrir að ala bitvarg í laxá, þá er þar hægt um vik. Þá er eftir hin jörðin. Það gæti komið til mála, að lagðar yrðu einhverjar kvaðir á laxveiðijarðirnar, til að bæta landinu skaðann, og væri jeg ekki fjarri því.
Það eru að vísu lög til frá 1912, þar sem gert er ráð fyrir, að einstök sýslufjelög megi útrýma sel, en þau lög hafa þótt helst til þunglamaleg, því að sú heimild hefir hvergi verið notuð. Hins vegar hindrar það ekki, að þetta frv. hafi fullan tilverurjett. Jeg legg til, að frv. verði vísað til landbúnaðarnefndar.