09.03.1923
Neðri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

52. mál, berklaveiki

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Jeg tók það kanske ekki nægilega skýrt fram í fyrri ræðu minni, að nefndin var sammála hæstv. atvrh. (KIJ) um það, að ekki væri ástæða til að flytja það frv., er hann mintist á, og að málið mundi ekki vinna neitt sjerstaklega við það, en það aftur á móti hafa í för með sjer aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.