03.04.1923
Neðri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (1935)

17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands

Forsætisráðherra (SE):

Þó þessi sparnaður sæti mótmælum nú, mun ekki líða á löngu uns samskonar frumvörp verða aftur tekin upp og borin fram til sigurs, ef þau verða nú drepin. Hitt er ekkert að undra, þó þessi háttv. þm. (BJ), sem síðast talaði, sje á móti því, því hann virðist skilja umboð sitt hjer svo, að hann eigi altaf að vera á móti öllum sparnaði.