04.04.1923
Efri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (2004)

19. mál, vitabyggingar

Frsm. (Jón Magnússon):

Jeg held, að jeg þurfi ekki að segja mikið þessu máli til skýringar, en læt mjer nægja að vísa til nefndarálitsins á þskj. 249. Nefndin treystist ekki til að leggja til, að veitt verði heimild fyrir svo mikilli lántöku til þess að byggja vita, þó að það sje auðvitað mjög áríðandi, að vitarnir verði bygðir sem flestir og sem fyrst.

Jeg segi svo ekki meira um þetta, en jeg vona, að hv. þm. hafi kynt sjer málið og sömuleiðis vona jeg, að hæstv. stjórn láti sjer vel líka, eftir því sem hæstv. atvinnumálaráðherra fórust orð þar um við 1. umr.