21.03.1923
Efri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í C-deild Alþingistíðinda. (2039)
96. mál, aðflutningsbann á áfengi
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg ætla mjer eigi að tala langt mál um þetta frv., en jeg vildi aðeins leyfa mjer að geta þess, að þegar um afplánun sekta er að ræða, þá er eigi tekið tillit til þess, hvort hinn seki er fátækur eða ríkur, en aðeins þess, að sektin sje greidd. Jeg álít, eins og jeg tók fram áðan, að frv. þetta sje illa hugsað og að það geti eigi staðist, eins og það er. Og jeg efast um, að hægt sje með nokkru móti að gera það svo úr garði, að það verði brúklegt, þó að því verði vísað til nefndar. Af þeim ástæðum er jeg á móti því til 2. umr.