28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í C-deild Alþingistíðinda. (2086)

102. mál, bankaráð Íslands

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Jeg vil aðeins, vekja athygli á því, að ef rökstudda dagskráin verður samþykt, þá er með henni lagt fyrir stjórnina að undirbúa þetta mál til næsta þings. Það er því mjög óheppilegt að samþykkja hana, ef menn vilja sinna frv. stjórnarinnar.