28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í C-deild Alþingistíðinda. (2087)

102. mál, bankaráð Íslands

Forsætisráðherra (SE):

Jeg vildi aðeins vekja athygli á því, að máske mætti láta þetta mál bíða, þar til sjeð verður, hvernig frv. um eftirlitsmanninn reiðir af. Annars hygg jeg, að það frv. muni hafa mikið fylgi hjer í þinginu.